Skilmálar Party & Co

Party ehf kt. 420222-0330, VSK númer: 144067.

Netfang: info@partyogco.is

 

Greiðslumöguleikar:

Við bjóðum upp á að greiða fyrir vörur sem keyptar eru á vefnum okkar með greiðslukorti (Mastercard/Visa) í gegnum örugga greiðslusíðu Saltpay. Sé óskað eftir að greiða vöru með millifærslu þarf að hafa samband við okkur á info@partyogco.is

Afgreiðsla pantana:

Pantanir eru teknar saman á 1-2 dögum eftir að greiðsla berst. Kaupandi fær þá staðfestingu í tölvupósti. Ef ske kynni að varan sé ekki til verður haft samband við kaupanda og tilkynnt um áætlaðan afhendingartíma vörunnar, eða endurgreitt sé þess frekar óskað. Pantanir eru sendar með Íslandspósti og Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu vörunnar. Kostnaður við hverja sendingu er tilgreindur við pöntun. Ef pantað er fyrir 7.000 eða meira er frír sendingarkostnaður með Dropp (ekki Íslandspósti). 

 

Afhending vöru:

Pöntunum er dreift af Póstinum og Dropp og sendingarkostnaður er reiknaður út frá þeirra gjaldskrá. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar gilda samkvæmt skilmálum Póstins og Dropps. Við berum ekki ábyrgð á því tjóni sem kann að verða í flutningi.
Einungis er hægt að fá heimsendingu/sækja vöru í vöruhús ef keypt er blaðra með helíum í. Í þeim tilfellum þarf að skilja eftir athugasemd í greiðsluferlinu um dagsetningu sem óskað sé eftir að fá vöruna. Ef vara er sótt í vöruhús er hægt að koma á milli 17-18:30 alla virka daga og á laugardögum frá 12-14. Vinsamlegast látið vita um áætlaða dagsetningu og tíma. Ef þessi tími hentar ekki endilega hafið samband við okkar á info@partyogco.is eða á facebook spjallinu. https://www.facebook.com/partyogco

 

Skilafrestur og endurgreiðsla:

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru, með því skilyrði að varan sé ónotuð, í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Ef búið er að rjúfa innsigli á pakkningu er ekki hægt að skila vöru. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja ef vöru er skilað/skipt og mun Party og co endurgreiða ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vöru sem er skilað/skipt, nema ef um gallaða vöru sé að ræða. Í þeim tilfellum verður sendingarkostnaður endurgreiddur. Hægt er að hafa samband við info@partyogco.is

 

Verð:

Öll verð á vefversluninni og reikningar sem gefnir eru út eru með 24% virðisaukaskatti. Athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara. Verð, myndir og vörulýsingar eru birtar með fyrirvara um villur. 

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem eru gefnar upp við viðskiptin. Þessar upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila við neinar kringumstæður, nema svo beri skylda gangvart lögum. 

 

Ertu með ábendingu eða fyrirspurn? Hafðu samband við okkur á info@partyogco.is

cartchevron-down linkedin facebook pinterest youtube rss twitter instagram facebook-blank rss-blank linkedin-blank pinterest youtube twitter instagram